loksins rigning
ég hef aldrei verið svona fegin að fá rigningu. mengunin hefur lækkað um 60% og ég get andað. í rauninni er ég búin að eltast við risamaura í allan dag, smash#$&x! sem hafa haldið sig örugga með að skýla sér inni hjá mér, hehehe. ég hef enga miskunn fyrir skordýrum.
við erum búin að kaupa okkur lestarmiða til shimla fyrir hinn daginn. Tíu tíma ferð í lest og þá er ég komin í þægilegra loftslag. Kanski að skurnin á bakinu á mér lostni loksins af. það mætti halda að rakinn hérna og hitinn ætli að breyta mér í skordýr til að kenna mér að drepa ekki minni máttar. ég er ekki að ýkja, bringan á mér er líka þakin hörnuðum frumum og mig klæjar, ég held allavega að þetta séu frumur.
En ég veit þið viljið örugglega heyra meira um hitaeksem en ég nenni ekki að tala um það meir. Svo í shimla ætlum við í heitar laugar svo keyrum við í nokkra tíma og förum til Manali sem er enn hærra upp í fjöllunum. Viðbjóðslega fallegur staður sem minnir víst á Svartaskóg. Það besta er svo afmælið hans Dhalai Lama sem okkur í boðið í eða við semsagt buðum okkur sjálf í. Það má sko.
Segjum ykkur betur frá þegar við erum komin þangað.

2 Comments:
Góða ferð!!!!!!!!!!
Vonandi breytistu ekki í eðlu.
Já, ætlaði að muna að segja ykkur frá sotlu sem ég las. Engifer á að hafa mjög svo góð áhrif á meltingu fólks, sérstaklega þegar það borðar hluti sem það er ekki vant að borða. Ég veit að það er mikið engifer í matnum á indlandi en það er mælt með því að skera ferskt í bita og sjóða og drekka sem te. Reyndar er líka mælt með því að setja fullt af sykri út í það og kæla (í ískáp eða með klökum), bæta við sítrónu og vera þá komin með þennan fína svala drykk.
Hugsaði til ykkar þegar ég las þetta í bók um gömul húsráð við ýmsum kvillum.
Vona að þetta geti hjálpað ykkur, kúkalabbarnir mínir....
Post a Comment
<< Home