Leiðinlegar helgar
Það býr lítil húsamús (?) hjá okkur Valda. Held að hún eigi vona á litlum músalingum bráðlega þar sem hún er svolítið sver um sig. En mér finnst húna bara sæt. Mun skárri en kakkalakkaungarnir sem reyna að skjóta sér inn í ískápinn þegar hann er opnaður. En við eigum hvort eð er aldrei neitt í ískápnum þar sem hann slekkur á sér milljón sinnum á dag.
Við héldum smá party í gær 4 manneskjur í allt, íhaaaa! gerðum kokteyla og fínery.
Ekki búin að smakka áfengi í mánuð og ekki búin að drekka meira en einn bjór í senn í c.a 5 mánuði. Það er ekkert gaman að drekka hérna í raun ekki hægt nema þú viljir eyða miklum peningum og kanski fara á einhvern club inní borginni sem spilar of háa (og leiðinlega) tónlist.
Núna er ég þunn og ekkert lítið þunn skal ég segja ykkur- rúmliggjandi allan daginn, takk fyrir!
Ég sakna vina minna!

3 Comments:
Hæ Kiddý og Valdi. Er í smá heimsókn á bloginu ykkar. Er ein heima - AÁB eru í veiði með öllum hinum, ég sit heima og skrifa mastersritgerð, doldið þunn...ja samt ekki...fór út að borða í Perluna í gær með mömmu og svo á einkaútihátið í garði hjá vinkonu minni. Var mjög spök. Notó fyrir bissí mömmu eins og mig að vera aðeins ein heima heila Verslunarmannahelgi. Góða skemmtun í skólanum elskurnar mínar. Ekki deyja úr hita. Kyssí, Ásdís
Verslunarmannahelgarfyllerí á Indlandi - Vá, ég dáist af þjóðrækninni hjá ykkur.
bregðumst hvorki landi né þjóð
Post a Comment
<< Home