Jæja þá er ég orðin regluleg í aulagimminu og ég held bara að mér líði betur í skrokknum. Ég er allavega að nota vöðva sem hafa ekki verið notaðir lengi. Sem er gott því það bendir til að ég geti staðið bein í baki eftir svona mánuð.
"passaðu þig Sif Garðars hér kem ég" -eitt skref í einu.
Fórum í mat til Sumans í dag og fengum grjónagraut sem heitir kír á hyndi. Sátum úti á veröndinni og vorum stungin eins og nálapúðar af þyrstum moskítóflugum. Það verður svo notalega kaldara þegar sólin fer niður að kona fórnar sér bara til að fá smá gust í andlitið. Annars er ég mjög stolt af mér fyrir að vera komin yfir moskító paranojuna. Núna er ég orðin svo vön því að vera stungin bak og fyrir og klæja alla nætur og geta ekkert sofið vegna þess og suðsins í óvininum.
Í raun ætti þetta að flokkast undir super powers því það þarf mikla einbeittningu til að klóra sér ekki, svo mikla að hún næstum því er ómannleg! hugsið aðeins um það.
væri gaman að heyra meira frá fólki svo ég viti að ég er ekki að senda sjálfri mér póstkort. Fullt af ást frá Indlandi- Kiddy
Eyvindur og Halla
Hvad eru thau ad bralla?

6 Comments:
sæl elska! þu ert hetja að geta gert þetta! Takk fyrir kommentið :) við fundum að þu vars með okkur allan tíman enda skálað fyrir þer í tima og ótima :) hlakka rosalega til að fa þig heim. knus og sakn
Kiddy mín ekki hafa áhyggjur við erum ansi mörg sem kíkjum inn á bloggið á hverjum degi en það er rétt við mættum svara oftar. Hef ekki náð í Mark hann verður við á morgun get ekkert gert fyrr en é heyri í honum
Kveðja mamma
Ef þú værir með teljara færi ég hjá mér ef þú sægir hversu oft ég kíki hér inn. Samt kommenta ég bara fyrir sjálfa mig í höfðinu.
Kiddý í gimmi er nú eitthvað nýtt fyrir mér. Ertu komin í gamla Ólafsvíkur gírinn: hafragrautur, hlaup, rækja, fiskur og leikfimisæfingar yfir sjónvarpinu. Vona að þú komir allavega ekki með eins mikla rifbeinasýningu og þá;-)
Hér er ég - góðan daginn, daginn daginn.
jú jú, ég lít einstaka sinnum við hérna líka - yfirleitt þegar ég kemst í tölvu. - ég er semsagt komin í sollinn og hef orðið þess áskynja að almenningi þyrstir í upplýsingar um hvenær þið munuð heiðra okkur á íslenskri grund! - kannski gæti blaðafulltrúin Halla reynt að róa lýðinn? en ég fyrir mitt leyti gæti hreinlega ekki staðið meira á sama um hvenær og hvort þið komið - ég er hugrakkur hermaður - ég er hermaður krists..
Je ræt Olla, ég hef heyrt að þú sért að krossa á eitthvað dagatal sem endar einmitt 15.sept. Ekki vera að ljúga að greyjunum með moskítóbitin...
Post a Comment
<< Home